Ég er alveg sammála þér marina um síuna. Ég tel hins vegar að hún síi út þá sem ekki hafa þekkingu og getu, frekar en að sía bara út þá sem ekki hafa menntun. Ég legg áherslu á það að menn get lært hlutina sjálfir líka. Ég þekki fullt af fólki sem fór aldrei í Háskólann að læra forritun en eru samt lærimeistarar þeirra sem það gerðu. Ég vil síst af öllu gera lítið úr Háskólanáminu því sjálfur hef ég áhuga á því. En menn geta líka lært þessa hluti sjálfir með því að lesa,lesa,lesa og lesa....