Það er sorglegt að verið sé að biðja okkur að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu af því að hún sé kona. Það er lítilsvirðing við kjósendur og lítilsvirðing við konur. Ég hitti alþingiskonu sem að var móðguð yfir þessari auglýsingu með hundraðkallana. Henni fannst þetta vera lítilsvirðing við sín störf í þinginu, störf annarra kvenna í þinginu, störf kvenna úti í atvinnulífinu og störf Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta lýðveldisins. Þú þarft ekki að vera forsætisráðherra til þess að hafa áhrif í...