Auðvitað er ég sammála þessu, að Dv hafi gengið alltof langt með þessum ummælum. En að það sé verið að vorkenna þessum nauðgara er lélegt. Hvernig ætli strákunum sem voru nauðgaðir líði? Þeir eru loksins núna að þora að segja frá þessu og viti menn maðurinn drepur sig og það vorkenna allir HONUM. Ég finn til með þessum strákum. Auðvitað er þetta bara ásökun og saklaus uns sekt er sönnuð blabla. En ég held þessir strákar myndu ekki segja frá þessu nema þetta sé satt. Þetta er það alvarlegt.