Nei auðvitað fílar engin stelpa svoleiðis, allavega pottþétt ekki ég. Ég fæ bara meiri áhuga ef ég veit að hann hefur áhuga á mér á móti. Og ég held hún hafi ekki fengið nóg af þér bara allt í einu. Annað hvort hafi hún aldrei haft neinn mikinn áhuga eða bara eitthvað annað.. eins og t.d. nýkomin úr sambandi eða einfaldlega ekki tilbúin í samband. Fullt af ástæðum… Bara, ekki, aldrei verða svona badboy því stelpur fíla það ekki! Vertu bara þú, og ef þú ert góði strákurinn, vertu þá þannig...