Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns Lennons, hefur áhuga á að setja upp friðarsúlu í Reykjavík. Borgaryfirvöld hafa tekið vel í hugmyndina. Hugmynd Yoko Ono gengur út á að reisa friðarsúlu þaðan sem ljós á að streyma frá og boða þjóðum heims frið. Friðarsúluna á að fylla með óskum fólks sem það hefur skrifað niður og hengt á óskatréð, sem er listaverk sem sýnt hefur verið víða um heim. Yoko Ono hefur safnað þessum óskum saman til að gera þær að hluta af friðarbón sinni sem friðarsúlunni er ætlað...