Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns Lennons, hefur áhuga á að setja upp friðarsúlu í Reykjavík. Borgaryfirvöld hafa tekið vel í hugmyndina.

Hugmynd Yoko Ono gengur út á að reisa friðarsúlu þaðan sem ljós á að streyma frá og boða þjóðum heims frið. Friðarsúluna á að fylla með óskum fólks sem það hefur skrifað niður og hengt á óskatréð, sem er listaverk sem sýnt hefur verið víða um heim. Yoko Ono hefur safnað þessum óskum saman til að gera þær að hluta af friðarbón sinni sem friðarsúlunni er ætlað að vera.

Utan á friðarsúluna á að rita tvær ljóðlínur, aðra eftir John Lennon og hina eftir Yoko Ono. Í fréttatilkynningu sem Listasafn Reykjavíkur hefur sent frá sér segir að Yoko vilji reisa þessa friðarsúlu á Íslandi. Landið sé á toppi heimsins og brú á milli heimsálfanna Ameríku og Evrópu. Því geti friðaróskirnar streymt héðan frá höfuðborg landsins til alls heimsins.

Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir að hugmynd Yoko Ono hafi verið kynnt borgaryfirvöldum og að borgarstjórinn, Þórólfur Árnason, hafi tekið vel í hana. Enn eigi þó eftir að finna súlunni stað en samkvæmt hugmyndum Yoko verður hún nokkurra metra há. Þá hefur ekki enn verið útkljáð hver muni bera kostnað af smíði súlunnar. Verði þessari hugmynd hleypt í framkvæmd verður súlan sett upp á næsta ári.

http://www.visir.is/?PageID=90&NewsID=15717

Rasta