Ég get ekki fengið mig til að hlusta á indie-rokk. Ég fæ aulahroll, fékk þenann ásamt Wolf Parade, Interpol og Broken Social Scene í jólagjöf. Allt, því miður, ömurlegir diskar.
Í svona litlum samfélögum á fólk sem lendir í svona málum ekki auðvelt uppdráttar. Það getur tekið marga mánuði og jafnvel ár að fá niðurstöðu dóms og á meðan er samfélagið búið að mynda sína skoðun á þér - með hjálp DV.
Ugh, mig langar í. Prófaði hana í Elko um daginn, NBA 2006. Lofar góðu, en ég tími ekki að fá mér hana strax, vil ekki eyða meira en 25.000 ca í hana og 10.000 í moddun. Ert þú alveg sáttur við hana, grafík og þá leiki sem eru komnir út núna?
Ég er ekki varnur að skipta mér af svona “mér finnst” athugasemdum, en ég get ekki stillt mig núna. Þó svo að þér finnist hún vera hræðilega léleg og hræðilega lélega leikin mynd þurfa ekki allir að vera sammála um það. Að segja fólki ekki að sjá hana útaf þér fannst hún leiðinleg er mjög óþroskað.
Mjög skemmtilegur lestur! Vona að það komi fleiri svona, spurning um að skella einni inn sjálfur.. Er að fara að xbox-lana um helgina. Um og yfir 50 leikir í boði.. :) En eitt stórt atriði sem þú tókst ekki fram, hvaða leikjatölva er þetta? Mjög þægilegt ef fólk myndi merkja það fyrst í titlinum, [PS2], [XBOX] o.s.frv. Takk fyrir ánægjulega grein.
Skjár 1 er sem betur fer mjög frjálsleg, enda hefur það einkennt þá alveg frá upphafi. Tek sem dæmi Tantra þáttinn og ljósbláu myndina Leyndardómar Skýrslumálastofnunar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..