Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Stoke City kynnti í dag nýjan aðalbúning (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Stoke City kynnti í dag nýjan aðalbúning félagsins fyrir næstu leiktíð. Stoke hefur slitið samstarfi við Asics og hafa þeir hafið samstarf við le Coq sportif og slíkt kallar að sjálfsögðu á nýjan búning. Þeir sem vilja skoða nýja búninginn geta farið inn á heimasíðu Stoke City.

Yfirburðir M. Schumacher algerir (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ótrúegt á að horfa, nú þegar 8 hringir eru eftir, hve Michael hefur keppnina fullkomlega í hendi sér. Frábær áætlun Ferrari, gott dekkjaval og frábær akstur verður allt til þess að enginn ökumaðurinn nær að ógna stöðu hans. Coulthard er öruggur í 3. sæti en nú stefnir í baráttu milli Barrichello og DC um annað sætið. McLarenbílarnir eru heldur að hressast í lok keppninnar. Mika hefur í tvígang sett hraðasta hring og er í baráttu við Ralf um 5. sætið. Frentzen er öruggur í 4. og ekur vel.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok