Pixies er nafn sem að líklega flestir kannast við þó að fáir geti nefnt mörg lög með þeim. Þessi eiturhressa nýbylgjusveit býr yfir miklum krafti og frumleika fram yfir flest önnur bönd. Hér ætla ég að dæma bestu plötu þeirra að mínu mati, Doolittle, en það eru nokkur ár síðan hún kom út. 1 Debaser 2:53- Platan byrjar á flottu bassa intrói hjá bassaleikaranum Kim Deal og svo tekur hraður gítarleikur við. Þetta er mjög gott lag, eitt það besta á disknum og þó að ég eigi bágt með að skilja...