Ég mundi segja að áður en þið farið að tala um óendanleika þá væri góð hugmynd að skilgreina það hugtak. Ef það er ekki gert þá lendið þið í ýmsum ógöngum því að óendanleikinn er margslunginn. Sem dæmi hefur verið sagt hér að ofan að summan af óendanlega mörgum tölum, hversu smáar sem þær eru, hefur alltaf útkomuna óendanlegt. Þar er rangt. Sem dæmi má nefna söguna um manninn sem ætlaði sér að komast ákveðna vegalengd með því að fara fyrst helminginn af henni, svo helminginn af því sem var...