Ég keypti mér M-audio bx8a í tónabúðinni/hljóðfærahúsinu um jólin og mér finnst þeir skila sínu ágætlega. KRK verður sennilega næst fyrir valinu þegar ég ákveð að uppfæra, en bx8a eru bara tussufínir og góðir fyrir peninginn. Þegar ég var þarna á fimmtudaginn var bara eitt par eftir af þeim þannig að þeir hafa runnið út eins og heitar lummur. Nota Sennheiser HD590 svona þegar klukkan er of margt fyrir monitora blast og þarf að kaupa mér önnur þegar kemur að því. Sennheiser HD-25 eru æði og...