B&O eru bara alltof dýr tæki miðað við hvað maður fær, þau eru vissulega flott (flest, ekki öll) en ég er persónulega ekki tilbúinn til að kaupa t.d. sjónvarp frá þeim þegar ég get fengið nákvæmlega sama innvolsið frá philips fyrir alla veganna helmingi minni fjárhæð. Ég spái meira í afköstin heldur en lúkkið á hlutunum, flest allt í dag t.d. frá Sony er flott hannað að mínu mati (30" LCD tækið er gullfallegt). ps. ég hef ekki neins staðar séð heimabíó frá B&O, finnst það nú lítil framsækni...