Hvaða, hvaða? Er nú ekki verið að gera úlfalda úr mýflugu? Eigum við ekki bara að hafa þetta ósköp einfalt og leyfa þeim sem hafa virkilegan áhuga á að vera admin að prófa það. Auðvitað þurfa að vera einhver skilyrði en mér finnst ekki að aldur eigi þar að skipta mestu. Þó að fólk sé orðið sextán ára er ekki þar með sagt að það sé allt í einu orðið þroskað og geti axlað þá ábyrgð sem fylgir því að vera admin, slíkt gerist ekki á einni nóttu. Sjálf er ég tuttugu og tveggja og hef engan áhuga...