Það er ekki rétt að maður þurfi að nota filmu með hátt asa gildi í að mynda norðurljós. Ég sjálfur nota eingöngu 100 asa filmu. Þegar norðurljós er mynduð á asa gildi hærra en 400 í asnalega langan tíma finnst mér norðurljósin alltaf verða af einni sósu, eða bara líkjast ekkert norðurljósum lengur. Ég er heldur ekki sammála því að borgarljósinn trufli norðurljós, reynslan segir mér annað… allt annað.