Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

olig
olig Notandi frá fornöld 824 stig
Áhugamál: Metall, Rokk, Bílar

Drudkh - Blood in our Wells (19 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Klikkað vönduð hippa black metal plata. Fíla oftast ekki svona fínpússaðan black metal en þessi býr til svo gríðarlegt atmo.. Klikkað vel pródúseruð, hljóðið alveg 100%. Geggjaðar gítarmelódíur og á bakvið flott hljómborðsvinna.Flott og epic lög um tré og álfa eða einhvern fjandan, allt á Úkraínsku.., eftir eitthvað voða fancy úkraínskt ljóðskáld eða álíka. Frábær plata í alla staði! Checkit! Myspace: www.myspace.com/drudkhfanpage Getið fengið plötuna hér: http://www.cfprod.com/nh/index3.htm

Ofur Mini (7 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Lítill Mini Cooper 1975 með Yamaha R1 motor swap. Allt boddýið er úr Fiberglass og viktar bíllinn ekki nema 581kg og er mótorinn heil 160bhp, sem gerir 271Bhp per tonn. ALLT um bílinn má finna hér http://www.pistonheads.com/sales/168726.htm Bara svöl græja.

Quorthon (6 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Einn af mestu meisturum í sögu metals! HAIL QUORTHON! BAAAATHORY!!

Dagon (17 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Gítarleikari,bassaleikar og söngvari hljómsveitarinnar Inquisition. Eitt besta black metal band sögunar og þá er mikið sagt! Þessi hljómsveit hreinlega klikkar ekki. Into the Infernal Regions of the Ancient Cult er án efa þeirra besta plata, mæli með að allir sem fíla alvöru black metal reddi sér þessari plötu, en allar eru þær meistarastykki. Myspace: http://www.myspace.com/inquisitionusa Live myndönd: Part 1 http://youtube.com/watch?v=eXvXvtuWbCg Part 2...

Gröf Euronymous((Øystein Aarseth) (39 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Eins og flestir hérna vita var Euronymous gítarleikari Mayhem, einn af þektustu black metal tónlistarmönnum innan stefnunar. En árið 1993 var hann myrtur af Varg Vikernes á hrottafullan hátt. Fæstir hafa séð þessa mynd þrátt fyrir að hún hefur verið á netinu í nokkur ár. Flott mynd eyhh?

Alvöru Trivia! (13 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Öll þessi Trivia sucka! Hérna kemur eitt frekar erfitt! Hvaða band er þetta.

Grand Belial's Key - Mocking the Philanthropist (8 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Mín uppáhalds plata með ameríska black metal bandinu Grand Belial's Key. Örugglega ein besta plata sem ameríska black metal senan hefur spítt útúr sér. Því miður eru ekki miklar líkur á því að þetta band gefi neitt út aftur. 27. Ágúst 2006 dó Grimnir Wotansvolk (Richard Mills) sem var söngvari og hljómsveitarinnar. Geggjuð plata í alla staði, mæli eindregið með henni!

IXXI (4 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Geggjað sænskt Black/Thrash metal band. Platan IXXI er ein af betri plötum sem ég hef hlustað á núna í ár. Meðlimir bandsins eru ekki af verri endanum, 3 meðlimirnir koma einmitt úr hljómsveitini Ondskapt sem er án efa eitt af því besta sem er að gerast í black metal í dag. Alveg eðal band sem þið verðið að kíkja á! Enginn meðalmennska hér á ferð! Myndband við lagið ,,Ancient Spirits Are" http://youtube.com/watch?v=y3Pev3AsJ60

Forgotten Tomb - Love's Burial Ground (7 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Var alveg búinn að gleyma hversu mikið ég fíla þessa plötu í botn. Klikkað Black/Doom band, kuldalegt,þunglynt og frekar ógeðslegt efni hér á ferð. Ættuð að kynna ykkur þessa plötu ef þið hafið ekki gert það nú þegar. Mæli líka með Obscura Arcana Mortis sem er einnig frábær plata, meira black í henni samt. Verst hvað nýjasta platan þeirra er mikið drasl, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég hlustaði á þá plötu. Forgotten Tomb og clean vocals er ekki alveg að gera sig fyrir mér. En ef þið...

Urgehal (12 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Norska eðal black metal bandið Urgehal hefur ekki mikið verið rætt hérna inná, sem er frekar asnalegt þar sem þetta er alveg eðal band. Þið black metal aðdáendur sem fílið t.d Darkthrone verðið að kíkja á þetta band. Mæli sérstaklega með plötuna Arma Christi,sem var fyrsta breiðskífan þeirra, og líke Massive Terrestrial Strike. Það eru að vísu bara mínar uppáhalds plötur með þessu bandi, en þeir hafa gefið út fleiri plötur(check metal-archives). Sample:...

Arioch (18 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Söngvari Funeral Mist og Marduk, frábær söngvari. Einn af mínum uppáhalds black metal öskrurum, fáir sem slá þennan kappa út í dag.

Watain - Casus Luciferi (9 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ein besta og flottasta black metal plata allra tíma, fáar plötur sem ég hlustað oftar á en þessa. Satanísk,skítug og trufluð plata útí eitt, fæ aldrei nóg af því að hlusta á Devil's Blood. HLUSTIÐ Á ÞESSA PLÖTU!!!

Meyhna'ch (9 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Meyhna'ch(Willy Roussel) úr Mütiilation og Hell Militia. Frábær tónlistarmaður og ég mæli sérstaklega með því að allir þeir sem fíla hráan black metal hlusti á Mütiilation, sérstaklega Remains Of A Ruined, Dead, Cursed Soul sem er mín uppáhalds plata með Mütiilation. Hrár og ógeðslegur black metal af bestu gerð. Þið eruð ekki sannir black metal hlustendur nema hafa kynnt ykkur Mütiilation, hvort þið fílið það eða ekki skiptir ekki máli. Smá copy/paste af Metal-archives. This band belonged to...

Hellbutcher (16 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Mega kvlt mynd af Hellbutcher sem er söngvari stórsveitarinnar Nifelheim. Mæli með ,,Servants of Darkness" plötunni. Geggjaður söngvari sem greinilega kann að pósa fyrir framan myndavélina. Mjög svipað Fenris(Darkthtrone) pósunum.

Armagedda (16 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Geggjað black metal band frá Svíþjóð. En því miður hafa þeir skilið við black metal útaf öllum þessum false böndum sem hefur verið að hrjá stefnuna. “Latest band statement: ``We do not perform Black Metal anymore, we do not want to be associated with the Black Metal scene of today nor yesterday. How people see our tunes from the outside doesn't matter, we are what we are and not what you think. We are not a Black Metal band anymore and we will never be again. Black Metal has been infected...

Golf gti vs Civic Vti (18 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Owned Golf! vííííteeeekkk!! Myndin er tekin á bíladögum 2007. Fleiri myndir: http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=58912

Marduk (35 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Eins og flestir vita er Marduk sænskt black metal band, ætti svo sem ekki að þurfa að kynna þá neitt. Frekar kvlt mynd, corpsepaint,blóð einhverstaðar úti í kuldanum ber að ofan.. Hversu fucking svalt er það. Nældi mér í Rom 5:12 fyrir stuttu sem er nýjasti diskur þessara sveitar. Var í raun bara spenntur fyrir að heyra almennilega í Arioch. Djöfull brá mér þegar ég setti plötuna í og renndi í gegnum hana. Þvílíkt þétt og flott plata og er án efa ein sú besta sem þessi sveit hefur gefið frá...

Sigh (31 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvað er málið? Aldrei heyri ég neitt um Japönsku black metal hljómsveitna Sigh.. Geðveikt band! tjekkitt Lög http://www.myspace.com/sighjapan HAIL HORROR HAAAAAAAAAAIL!!

Dissection - Storm of the Light's Bane (24 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Þetta er plata sem ALLIR black metal aðdáendur eiga að hafa hlustað á. Ein besta plata allra tíma, algjör klassík. Plata sem ég get hlustað á aftur og aftur og aftur á. Ætla ekki einu sinni að pósta myspace-inu þeirra því að þið eigið að vera búin að kynna ykkur þetta efni.

Wurdulak - Severed Eyes Of Possession (26 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ógeðslegur black metal í boði meðlima Necrophagia og Maniac í Mayhem. Frábært efni fyrir alla black metal hausa. Gore og anti-religious textar, hvað meira þarftu að byðja um? ég meina.. gore..

Horned Almighty (15 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Geggjað danskt black metal band sem ég mæli eindregið með. Fann þetta fyrir svolitlu síðan þegar ég mátti bara hlusta á dönsk bönd í dönsku tímum. Komst svo loksins í eitthvað almennilegt og kynntist plötuni ,,Black Metal Jesus“ frekar lélegt nafn en ágætis plata. Sjálfur mæli ég með plötuni ,,The Devil's Music - Songs of Death and Damnation” sem kom út árið 2006. http://www.myspace.com/hornedalmighty

Endstille (12 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Frábært black metal band frá Þýskalandi. Gríðarlega flott og kraftmikið band og mæli ég eindreigið með plötuni Navigator. Gaman að nefna það að þeir tóku greinilega Gorgoroth sér til fyrirmyndar en þeir einmitt létu fjarlægja alla textana þeirra af netinu,þ.e.a.s. þessum þekktari síðum. Töff band með mega attitude! http://www.myspace.com/endstilleband BASTARD!!

Antaeus (7 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Hrár,satanískur black metal í hæðsta gæðaflokki. Þetta franska black metal band hefur fengið mikla athygli vegna nýjustu plötu þeirra ,,Blood Libels" sem gefin var út árið 2006. Hrá og ógeðsleg tónlist eins og hún gerist best, mæli með þessu! http://www.myspace.com/antaeusdpe

Watain (9 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ef þú hlustar á black metal en veist ekki hvað Watain er þá ættiru að skammast þín. Eitt allra besta black metal band allra tíma. Hail Watain! http://www.myspace.com/watainofficial

Dóna Audi RS4 (18 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Frekar mikill dóni þessi á sínum Audi RS4. V8 4.2l og 420hp/430nm, hvernig ætli nýji M3 eigi eftir að verða á braut miðað við þennan? Hver tekur hvern?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok