Marduk Eins og flestir vita er Marduk sænskt black metal band, ætti svo sem ekki að þurfa að kynna þá neitt. Frekar kvlt mynd, corpsepaint,blóð einhverstaðar úti í kuldanum ber að ofan.. Hversu fucking svalt er það.

Nældi mér í Rom 5:12 fyrir stuttu sem er nýjasti diskur þessara sveitar. Var í raun bara spenntur fyrir að heyra almennilega í Arioch. Djöfull brá mér þegar ég setti plötuna í og renndi í gegnum hana.
Þvílíkt þétt og flott plata og er án efa ein sú besta sem þessi sveit hefur gefið frá sér. Lausir við allt þetta kraftleysi sem var í World Funeral.

Mæli með þessari plötu!
Algjör eðall. Nú er bara að bíða eftir nýju Funeral Mist.