Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Amd hættir að læsa multipliernum ..

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Skrítið að þeir selji þá ólæsta, en það er samt kúl… :) Minn Duron700 var læstur en það tók heilar tvær mínútur að aflæsa hann.

Re: Móðurborð

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég hef aldrei formattað né sett upp Windows aftur þegar ég hef skipt um móðurborð. Aldrei lent í veseni. Ef þú vilt vera alveg safe, þá er nú samt allt í lagi að henda öllu út og byrja upp á nýtt, your choice.

Re: Arkitekt, Autocad! örgjafi?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ef þú ert að vinna við þetta þá er ekkert vitlaust að láta fyrirtækið plompa út fyrir fínni P4, ca. 1,5 GHz. Rambus minnið er það hratt að það ætti að höndla þetta betur en SDRAM eða DDR.

Re: Power supply

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Duron taka tiltölulega litla orku miðað við T-bird, það skiptir meira máli hversu marga harða diska, geisladrif/DVD/Skrifara og AGP/PCI/ISA kort þú ert með. Ef þú ert með ca. fjögur af hvoru eða meira, (2 harða diska, geisladrif, skrifara, skjákort, hljóðkort, netkort, módem… fljótt að safnast upp :) þarftu pottþétt 300 watta power supply.

Re: Móðurborð

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Bull og bábiljur… Hlustaðu ekki á þetta fólk. Þú þarft í mesta lagi að ná í 4-in-1 drivera ef þú færð þér móðurborð með VIA kubbasetti.

Re: Minni

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þó svo að slíkt kort væri til væri ekkert sniðugt að keyra hluta af RAMinu á 33mhz meðan restin keyrir á 100 eða 133 mhz. Þú verður bara að fá þér eitt stykki 256mb og þá ertu í góðum málum, kostar ekki nema 10 þús.

Re: Geforce 2 Pro

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hmmm… ‘2’ takkinn á lyklaborðinu mínu virðist vera gallaður. Þetta á sjálfsögðu að vera Geforce 2 Pro.

Re: Hitastig á ÖRGJAFA

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Félagi minn fékk sér svipaða tölvu og þína úr Tölvulistanum og hitinn á örgjörvanum hans var 65.6°c. I kid ye not. Ef þú ert búinn að tékka á hitanum, værirðu til í að pósta hann hér? Mig grunar að þetta tengist allt saman hinum hræðilegu CoolerMaster viftum frá Tölvulistanum, ég er með Duron700@800 og under load fer hann hátt í 45°c. Engin fsb eða voltage mod, bara multiplier. Það kalla ég ekki frábært…

Re: Red Faction

í Half-Life fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Bara smá leiðrétting… Maður er hluti af andspyrnuhreyfingu gegn yfimönnum námasvæðanna, sem mér persónulega finnst mun betra en að maður sé að svala forvitninni. Og þetta release date, maí, stendur víst fyrir PS2 útgáfu leiksins, sem varðar okkur ekkert :) Hann á að koma í sumar fyrir PC (í US, veit ekki með Evrópu).

Re: Bæ bæ Half-life

í Half-Life fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Veldi Half-Life sem besti singleplayer leikur ‘ever’ leið undir lok í fyrra, þegar Deus Ex kom út. Það mun reynast erfitt að toppa hann.

Re: Breyta region coda

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 9 mánuðum
Ef þig vantar hjálp með DVD-Rom þá er það auðvitað www.visualdomain.net<br><br>Allur fjandinn þar á ferð
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok