Ástæðan yfir að ekki er minnst á kennslutíma hjá þeim sem ekki eru í Quidditchliðinu er líklegast sú að þetta eru bækurnar um Harry Potter :) ekki bækurnar um Harry&co
Það er allt útskýrt í bókunum. Tímanum má ekki breyta, það sem er liðið er liðið…! Það er mikilvægasta reglan í lífinu, bæði hjá Muggum og Galdramönnum :)
Það er góð spurning ;) svo er það hitt… drápsbölvunin virkaði ekki á hann heldur þegar hún kastaðist til baka, sem er greinilegt þar sem hann er snúinn aftur…svo hversvegna ætti minnisgaldur mun áhrifaminni að virka?
Góður punktur….mig langar samt óendanlega að mæta í bíóið og láta henda mér út fyrir að benda á hverja einustu villu í myndinni yfir salinn….og ekki koma með kommentið “reyndu að líta framhjá bókunum mimimimi” því það er staðreynd að þessar myndir eru gerðar eftir bókum. Þessar myndir eru að nauðga bókunum svo hrottalega það ætti að kæra O.o
Lýsingin hér uppi á Harry Potter nörda átti við mig…en ég lít ekki á mig sem Harry Potter nörda! Af hverju þarf það að hafa áhuga á þessum bókum að vera nördalegt? Þú kallar ekki kappakstursmann “bílanörda” eða snjóbrettagaurarnir sem allir geta slefað yfir tímunum saman…heyrirðu einhverntíman talað um “brettanörda” ? Þetta er lífstíll…eins og hjólabretti er lífstíll fyrir hjólabretta menn og konur, þá er Harry Potter lífstíll
Ég bý á Akureyri…ætla reyna að plata foreldrana til að leyfa mér að fara suður og ef það tekst, sem ég vona, þá plata BudIcer til að keyra með mér suður :P en já…vá hvað ég er spennt…og þetta er fyrsti korkurinn á þessum hluta sem ég les :O
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..