Exton hljóðkerfi sá um kerfið og þetta var sama kerfi og þeir notuðu á Metallica. Ég gæti ekki verið sáttari með þetta kerfi, en það hefði mátt heyrast meira í Bruce, eða þeir hefðu átt að hafa hærra í kerfinu yfirleitt, það var miklu hærra á Metallica að mínu mati.