Haha, frekar leiðinlegt í byrjun, allavega - lítið af valkostum þegar kemur að leikmannakaupum o.s.frv. En það skánar og verður náttúrulega orðið gaman þegar erfiðið byrjar að skila sér!
Frábær mórall, allir geta verið með öllum í öllu, margir hanga saman utan skóla…bara, þú veist, mikil samkennd. Kom á óvart, sérstaklega af því að fólkið í þessum bekk er svo ólíkt. En það er sennilega bara betra. :)
Tjahh…staðan í mínum bekk er önnur. 27 manns - flestir af höfuðborgarsvæðinu eins og eðlilegt er, tvær utan af landi og ein frá Reykjanesinu. Okkur semur vægast sagt frábærlega.
Er í MR, reyndar á náttúrufræðibraut…en það er aðallega horft á einkunnir úr tungumálagreinunum við útreikninga. Gildir allavega hærra en flest annað. Hvað félagslíf og stemningu varðar…A+. Bekkjakerfið er málið.
Fátt sem mér þykir meira pirrandi en þegar fólk er að rífast um þetta. Persónulega nota ég alltaf “eyða”, en hef aldrei neitt út á það að setja ef fólk segir gat.
Hef alltof oft tekið við Bradford City, það er gaman. Hef líka haft gaman af Gateshead og York City. Toppurinn er samt Huddersfield Town fyrir mér. Elska þetta lið.
Hef bara fengið Kazenga Lua Lua til Íslands, fyrir tiltölulega lág laun og hann stóð sig nokkuð vel. (ekkert heimsklassa leikmaður, en samt nokkuð góður)
Nei, ég veit - slöpp rök. En allavega, aðalástæðan fyrir því að ég fer í þýsku er sú að mig langar að læra hana og hún kemur til með að gagnast mér (vonandi) í framtíðinni, enda freistar það mín að búa í Þýskalandi einhvern daginn. :)
Haha, fatta þig :D En það er einmitt meðal ástæðna að ég ákvað að velja þýsku framyfir spænsku, þrátt fyrir að ALLIR sem að ég þekki sem eru að fara í MR hafi valið spænsku. Svo er maður með einhvern smá grunn í þýsku…
Nei, sko…var að meina að menntaskólaþýskan sem þú lærir gagnast þér betur í Þýskalandi heldur en menntaskólaspænskan gerir á Spáni, sérstaklega vegna talanda. En já, segir það. Hvernig er hún ömurleg?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..