Aðalsetning getur staðið ein og óstudd, en aukasetning ekki. Aukasetningar byrja líka alltaf á aukatengingu. Dæmi: Ég kann að elda en ekki að baka. “Ég kann að elda” er semsagt aðalsetning, því maður gæti alveg sett punkt strax þar á eftir. “En ekki að baka” er aukasetning, og hljómar því asnalega ein og sér.