Ég var einusinni með vinkonu minni að ganga eitthvert hér í mínum heimabæ, það var í vetur svo það var búið að moka öllum snjónum af götunni upp á gangstéttina. Við komumst náttúrulega ekkert á gangstéttina, metra djúpur snjór þar, svo við gengum bara á götunni. En heeey, kom ekki bara löggimann og stoppaði okkur. Skipaði okkur að nota gangstéttina. Hinn löggimanninn sem var með honum í bílnum fannst þetta svo fáránlegt að hann flissaði allan tímann sem hinn lögginn var að skamma okkur. Haha.