Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Vonast eftir góðum svörum...

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ok takk. Of flókið fyrir mig samt, en ég tala bara við einhvern viðgerðarkall fyrst þetta er hægt.

Re: allir hugarar ?

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Tilhvers að hafa leyniskilaboð ef þú skrifar að það séu leyniskilaboð? Þá eru þau ekkert leyni lengur.

Re: allir hugarar ?

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég er svo lítil og það sökkar. Hef ekki mælt mig nýlega, en er líklegast svona 163-165. Það er pínu sárt þegar litli bró er tuttugu sentimetrum hærri en ég. Ég er samt að vinna með tveim stelpum sem eru minni en ég, ótrúlegt en satt, og þá get ég kallað þær dverga. Feis! Reyndar held ég að langamma mín hafi verið dvergur.

Re: Vonast eftir góðum svörum...

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ok takk. Við bara komumst ekki inn í tölvuna, þetta kemur þegar hún kveikir á sér. Annars myndum við bara vista allt á diska og henda ruslinu á haugana. Þori ekki að gera neitt ef það er ekki pottþétt að gögnin séu örugg.

Re: Vonast eftir góðum svörum...

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hahaha. Já mig langaði að prófa. Veit ekkert hvað þetta er heldur… eitthvað tölvuleikjadæmi.

Re: Playlist

í Metall fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Maður þarf bara tvö lög til að hafa góðan “metal” playlist. Dream Theater - Home Opeth - The Drapery Falls Það verður nefnilega aldrei þreytt.

Re: Vonast eftir góðum svörum...

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Aaalveg viss?

Re: Ameríska útgáfan af Playstation 2!

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég held það sé enginn munur nema bara á því hvernig maður plöggar henni. Þúveist, á klónni. Njah, annars veit ég lítið um leikjatölvur. Gæti verið eitthvað annað.

Re: Vonast eftir góðum svörum...

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já það er satt. Ég er guð og ég get verið allstaðar á sama tíma. Neidjók. Ég er ekkert allstaðar. Ég er ekkert á tölvuleikja- eða dýraáhugamálunum. Ekkert á Skjálfta eða Sorpinu, og lítið á Tölvuogtækni og íþróttaáhugamálunum. Þannig að ég er… bara á restinni!

Re: Goth Harry og fl.

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Er þetta samt ekki Hermione á myndinni? Ef Emma er í gervi og hlutverki Hermione þeas.

Re: OMG

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já hann var að segja áðan að ég svaraði útum allt. Vondikall. Ég er viss um að hann fer bara í ítarleg leit og sér allt sem ég hef skrifað…

Re: jeff who?

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Örugglega Barfly. Ég man ekki hvar ég fékk það, downloadaði því bara af einhverri íslenskri síðu… held ég.

Re: Goth Harry og fl.

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Iss. Hræsnari.

Re: OMG

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hey, þú ert hérna líka! Stalker…

Re: OMG

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Mér finnst omg skemmtilegt. Ég nota það oft í daglegu máli.

Re: Er engin búinn að heyra...

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Úff það er svo heimskulegt að “aðdáendurnir” séu að skammast yfir því hvernig hún skrifar söguna. Annars kemur það alls ekkert á óvart að einhver muni deyja í síðustu bókinni. Aðalpersónur hafa dáið í nánast hverri einustu bók.

Re: Biblían

í Hugi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég held það standi hvergi í Biblíunni beint. Allavega man ég ekki eftir því að hafa lesið það, og já ég hef lesið Biblíuna alla oftar en einusinni. Gæti samt verið að ég hafi rangt fyrir mér. Það er allavega í menningu Gyðinga að svín séu óhrein dýr. Kristnir menn éta svo svín einsog svín. (ehhheeehhe, brandari?)

Re: Skelfilegasta sem þið hafið lent í?

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Töff. Ég er ættuð frá Bjarnarfirði. Afi minn var fæddur á Klúku.

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þú mátt hafa skoðanir. En þú mátt ekki hafa fordóma, það er bannað samkvæmt lögum að mismuna fólki eftir kynþætti. Og ef það er satt að þú sért að verða 15 ára, þá ertu að verða sakhæfur. Þá má kæra þig fyrir ummæli á borð við þessi. Skilurðu núna?

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hahaha. Ja, þetta kúkakomment var nú bara djók. Kannski ég hefði átt að taka það fram svo það færi ekki á milli mála.

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hey, þú ert samt 13! Sem gerir mig þrem árum eldri en þú. Ahh. Afþví þessir Filippseyingar voru með leiðindi, dæmiru samt aðrar þjóðir útfrá þeim? Það lýsir eintómri fávísi. Og nei, ég held ekki alltaf að ég sé best. Ég veit líka alveg að ég veit ekki allt. Ég er samt ekki að auglýsa heimsku og fáfræði mína útum allan Huga. Í sumum málum veit ég betur. Þá reyni ég að hjálpa þeim fávísu að skilja heiminn betur, en sumir taka því ekki og eru bara með stæla. Einsog þú. Ég er einungis að reyna...

Re: Prison break lokaþáttur

í Spenna / Drama fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Njah, einusinni eða tvisvar áður :P Þetta er bara… ávani. Svara öllum þeim þráðum sem ég hef eitthvað að segja við. Mér finnst bara gaman að sína mitt álit á hlutunum. Held ég. Kannski er ég bara athyglissjúk.

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ahh, já. 13 ára gelgja sem kann ekki að skrifa og hatar alla aðra en Íslendinga afþví einhverjir Filippseyingar leyfðu honum ekki að fara í körfubolta? Þú hlýtur að vita betur en ég.

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
ÞÚ VEIST EKKI HVAÐ ARÍI ER. Hitler hélt að Íslendingar væru allir ljóshærðir og bláeygðir, en varð svo fyrir vonbrigðum þegar hann sá að svo var ekki. Íslendingar eru ekki aríar og hafa aldrei verið. Við erum bara Íslendingar.

Re: svar við kynþáttafordómakork shakeit

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Fullorðnir rasistar já. Þroskaðir rasistar, nei. Gáfaðir rasistar, nei.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok