þetta er kolvitlaust hjá þér drengur Þegar orðið tölva var búið til var það hugsað sem svokallaður -wôn stofn, það er stofn með -v-i . Mjög fá orð féllu í þennan flokk í málinu til forna og fá teljast til hans nú, reyndar aðeins slöngva, völva og sérnafnið Röskva. Fáliðaðir orðflokkar hafa tilhneigingu til að laga sig að öðrum orðflokkum og verður þá til tvenns konar beyging. Þannig er það með slöngva, sem í aukaföllum (þf., þgf., ef.) var og átti að vera slöngu, að -v- þröngvaði sér inn í...