Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mundalitla
mundalitla Notandi síðan fyrir 21 árum, 10 mánuðum Kvenmaður
256 stig
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…

Re: Orbital

í Húðflúr og götun fyrir 19 árum
Ég held bara að eyrað á mér bjóði ekki upp á að ég gati mig þarna. Er of langt á milli þá og ég held að það fari mér bara ekkert vel. :)

Re: Orbital

í Húðflúr og götun fyrir 19 árum
Já, ég er sammála þér með þetta. Ég held til dæmis að ég sé ekki með eyrað í þetta.

Re: Töff Rós

í Húðflúr og götun fyrir 19 árum
Þetta er geðveikt sætt tattoo. Ég væri meira að segja til í eina svona :).

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Æjhh… :D Takk *roðn*

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Heheheh… Takk sæta :)

Re: ?

í Heilsa fyrir 19 árum
Já, það skiptir máli hvort það er satt eða ekki. Ég vil leifa mér að efast um að strákur á fimmtánda ári sé með bringu hár.

Re: ?

í Heilsa fyrir 19 árum
Hann er 15 ára. Hver segir að strákar sem eru 15 ára séu komnir með bringuhár?

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Þú ert bara öfundsjúkur því að þú varst ekki ánægður með sjálfan þig þegar þú varst “með þetta allt saman” eins og þú sagðir áðan en ég er ánægð með mig. Þú ert öfundsjúkur afþví að ég er ánægð með útlitið mitt á hverjum degi, en ekki þú. Ég tel mig meira að segja vera geðveikt sæt í dag, þar sem hárið mitt er nákvæmlega eins og ég ákvað að það ætti að vera í dag og ég er mjög fallega máluð í dag. Fötin mín eru líka mjög fín og sumarleg. Svo að ég get með réttu móti sagt þér að þetta sé bara...

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Heyrðu nú mig. Þetta er að farið að verða svolítið gróft. Ef þú getur ekki sætt þig við það að ég er fullkomlega ánægð með sjálfa mig, þar sem fólk í kringum mig elskar mig eins og ég er og setur aldrei neitt útá mig, þá verður þú bara að leita þér hjálpar. Ég get bara ekki sagt annað. Haltu þessari öfundsýki síðan bara fyrir sjálfan þig.

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Hætt þú að ljúga að sjálfum/sjálfri þér um að þú vitir hvað þú ert að segja mér. Hér ert það þú sem ert að ljúga, ekki ég. Þar sem að þessi aukakíló eru ekkert rosalega mörg og þau eru komin til að vera. Reyndu bara að sætta þig við það að ég er ánægð með sjálfa mig. Greinilega annað en þú!

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Ég tel mig líka vera þessi millivegur sem þú nefnir. Ég er ekkert offitusjúklingur og ég er ekki feit, ég er þybbin og ég veit það. Gott þú gast losað þig við þetta allt seins og þú segir og ég vona að þú hafir verið ánægður með þá ákvörðun en ég ætla ekki að fara að losa mig við aukakólí nema að ég vilji það sjálf. Ekki þegar einhver sparkar í rassinn á mér og segir mér að fara í megrun! Ég ræð þessu alfarið sjálf.

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Ertu ekki að grínast?? Ég er ekkert að ljúga að einum eða neinum. Afhverju helduru að ég líti svona út? Afþví að ég kýs það. Ég borða það sem ég vil borða og er ekkert verri manneskja fyrir vikið. Ég er víst ánægð með sjálfa mig og þú getur bara ekkert sagt mér hvað mér finnst. Ef ég segist vera ánægð með sjálfa mig er ég ánægð með sjálfa mig. Þú getur bara bitið í það súra epli. Þybbið fólk hefur bara meira til að elska en horað fólk, og ég vil ekki vera ein af þeim. Bætt við 1. maí 2007 -...

Re: Hárið mitt

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Ahhh… Sæl. Ég man eftir þér :D.

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Hey, er það ekki mitt að velja hvernig ég lít út eða? Ég er nú bara ágætlega ánægð með sjálfa mig eins og ég er. Ég myndi ekki vilja vera horuð og líta út eins og anorexíu sjúklingur. Ég var það á tímabili enda ekki langt frá því að vera með anorexíu. Ég er bara mjög ánægð með mig eins og ég er því að ég veit það sjálf að mér finnst fallegra að hafa aðeins utaná sér heldur en að vera eitthvert horgerpi. Fegurðin kemur að innan ekki að utan vinur/vina. Svo að kannski mættir þú bara bæta...

Re: Hárið mitt

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Nú nú? Hvernig ætti það að vera :)? S.s hvernig og hvenær ;)?

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Hvað meinar þú með því?

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Hahahahaha… Reyndar yrði kærasti minn ekki glaður ef ég myndi lita hárið mitt dökkt. En hann var líka á móti því að ég litaði það svona ljóst en honum finnst það mjög flott núna :D hehehehhehe…

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Það er lang best. :D Mér finnst þetta fara mér miklu betur en minn upprunalegi litur og ég prufaði einu sinni að vera svarthærð. Það var ekki cool. Það var eiginlega bara skelfilega ljótt. :D hehehehe…

Re: Hárið mitt í lit

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Jú, ég er bara með skol í hárinu þannig að hárið er ekki alveg svona hvítt núna en það er ekki gult. Það verður hvítt þar til ég lita það öðruvísi. Sólin sér um það. En það er gott að ég get hjálpað ef þig langar í svona lit :D. Gæti samt verið erfitt ef þú ert með dökkt hár, ég er með mjög ljóst hár fyrir og litaði það ljósara og það tók ekki nema tvö skipti að fá það svona.

Re: Ávaxta bolla?

í Matargerð fyrir 19 árum
Getur alveg gert bara eina eftir þínum smekk, ég kann bara óáfenga drykki en það er held ég alveg hægt að setja bara vodka út í. Getur til dæmis sett appelsínusafa, sprite, grenadine og lime dropa og lime báta út í. Heitir ógnvekjandi minnir mig. Nema það er ekkert áfengi í honum, held það sé nú ekkert mál að setja bara slatta af vodka út í. Smakka sig til. Bætt við 27. apríl 2007 - 14:07 Ég held reyndar að það sé geðveikt gott að taka niðursoðin jarðaber og setja í bollu skál og vodka út í....

Re: Eldhúsið á heimilinu

í Heimilið fyrir 19 árum
Þetta finnst mér skelfilega ljótt eldhús :s. Allt útum allt og innréttingin er ekki einu sinni spennandi. Ég væri ekki til í að elda, baka eða sinna neinu í kringum mat þarna inni.

Re: Silkikisa Theodór

í Kettir fyrir 19 árum
Mér finnst þú ættir að skoða nýjustu myndina sem ég sendi inn af honum og svo máttu segia: mér finnst hann ógeðslegur. Því hann er langt frá því að vera ógeðslegur.

Re: Hárið mitt

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Ég skoðaði nokkrar greinar eftir þig og það fer ekkert á milli mála hver þú ert! Ég er einmitt alltaf að horfa á í hvaða skóm þú mætir næsta dag. Mér finnst ég aldrei sjá sama parið :D. Hahahahaha… En já, ég veit hver þú ert líka :).

Re: Ógeðslegir draumar

í Tilveran fyrir 19 árum
Mig dreymdi í nótt að mamma mín var að berja mig og tala illa um mig og við mig. Reyndar erum við ósáttar í agunablikinu en mér fannst þessi draumur allavegana vera mjög leiðinlegur. Mér leið ekkert rosalega vel þegar ég vaknaði.

Re: Hárið mitt

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
HAHAHAHAHA…! Nei, ekki einu sinni nálægt því. Þetta er bara svo ótrúlega ómerkilegt að ég vildi ekkert vera að skrifa það hérna inn á huga :).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok