En afhverju gerði hún það ekki bara? -Heili hennar meðtók það af fyrri reynslur (þá er ég ekki að segja að hún hafi einhvern tíman gert þetta) að hún varð að gera þetta og því gat hún bara tekið þessa “ákvörðun”
Ástæðan fyrir því að Gunni valdi hægri gæti ef til vill verið út af því að (ég sé þetta fyrir mér sem húsasund á stað þar sem hann þekkir sig ekki til) hann var aðeins vinstra megin á veginum og sá betur til hægri hliðarinnar - fótskrefin hans voru kannski þannig röðuð að það hefði verið þægilegra og ekki þurft að hika alveg jafn mikið við hægri en vinstri.
Hvaða staðreyndum??? - Eru einhverjar aðrar staðreyndir en þær sem hann nefndi? Flestar “staðreyndir” eiga ekki við þetta efni því þetta er miklu persónubundnara. Afhverju ætti hann að halda einhverja alsherjarrannsóknarleiðangur um líffræðilega og andlega mun karla og kvenna fyrir auma grein á huga sem var til þess ætluð að koma í kring umræðu um þetta efni.
Nei sko ég er að gera mér grein fyrir því hvað ég hef það gott. Betra að vera semi-meðvitundalaus og fatta að þú ert undir hlýrri sæng, en að vera meðvitundarlaus og gera þér ekki grein fyrir því að þú ert undir hlýrri sæng.
ÞAÐ er svekk. tók einhvern tíman vitlausan strætó sem beygir sko í aðra átt en strætóinn sem ég tek venjulega bara strax eftir mína stoppustöð og ég fattaði ekki fyrr en ég var alveg laaangt kominn inn í allt annað hverfi að ég væri á villigötum. Þannig ég bara… djö… kom soldið seint ég hef sko tamið mér þann ljóta ósið að sofa í strætó. Þarna var ég reyndar ekki sofandi en eins og það sem gerðist þarna benti til var athygli mín enn þá að berjast við dreka og leysa ýmsar ráðgátur.
Alla veganna væri það yfirþyrmandi tilviljun að það gerðist á svo stuttum tíma og einmitt þeim sama og öll þessi sælgætis- tölvu- og sjónvarpsvæði kom til sögunnar.
ofvirknin og athyglisbresturinn er bara afleiðing mikilla sætinda Það að fara út í búð og kaupa sér nammi fyrir 200 kall var alveg vel hellað yfir strikið í okkar augum og við hlógum mikið af því að einhver gerði það. núna eru feitar 8 ára stelpur að kaupa sér bland í poka fyrir 500 til að seðja sætindisfýsnum sínum á miðvikudögum líkt og öðrum dögum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..