Optical tæknin er ekki svo ný af nálinni ég var með optical við 386 hér áður en sú mús þurfti sérstaka mottu, platta til að virka, byltingin er þessar nýju sem lesa hreyfingu frá nánast hverju sem er. En mitt álit á þessari optical tækni sem nú er vinsælust er nú, þeir sem nota þessar mýs verða að vera tilbúnir til þess að bendillinn skjálfi eins og parkinssonssjúklingur, með fullri virðingu fyrir þeim, nema yfirborðið sem músin les sé rennislétt helst pólerað.