Ég hef svolítið verið að pæla í þessu. Ég er núna að ljúka grunnskóla svo ég veit ekkert hvernig framhaldskólinn er og þessi blessuðu samræmdu próf. En hér er hugmyndin mín Þá er námstíginu skipt upp í 3 tímabil. Fyrsta er leikskólinn, sem er ekki bara barnapössun heldur líka kennsla á ýmsum grundvallaratriðum lífsins. Þar læra börnin mannasiði, söng, þjálfa heilann (með ýmiss konar leikjum, t.d púsl og pörunarverkefni) og ýmislegt fleira. Þegar börnin eru komin á ákveðin aldur, segjum bara...