Eru einhverjir hérna sem fíla þessa hljómsveit? Mér finnst þeir frábærir og eiginlega eina íslenska hljómsveitin sem ég hlusta á.

Ég byrjaði að hlusta á þá fyrir um ári síðan og síðan keypti ég nýja diskinn þeirra. Svo er ég í Lúðrasveit Æskunnar sem spilaði með þeim um daginn og kynntist bæði þeim og tónlistinni þeirra betur. Þetta eru mjög hæfileikaríkir tónlistamenn og eru með alveg frábæra tónlist.

Svo hvernig finnst ykkur Jagúar? Ef þið hafið ekki heyrt í þeim mæli ég með því að þið prófið að kynna ykkur þá.