Það er gaman að fá að verða vitni að stóratburðum. Við sem horfum á formúluna í dag getum sagt seinna meir frá því að við höfum séð sigra MS í upphafi aldarinnar. Við sem höfum áhuga á kappakstri höfum heyrt sögur frá fyrri árum sem komast ekki í hálfkvisti við afrek MS í dag. Njótum á meðan í boði er og horfum á formúluna með afburðamann í toppsætunum. Það verður gaman að fylgjast með í framtíðinni þegar aðrir fara að reyna að toppa hann, en ólíklegt er að það takist nokkrum manni fyrr en...