Ég er einn af þeim sem les bækurnar í einum rykk á svona 12-18 mánaða fresti. Mér finnst myndahöfundur taka sér fullmikið skáldaleyfi á köflum, sérstaklega þegar hann breytir persónuleika einstakra persóna, gerir Merry og Pippin að nánast fávitum þegar þeir voru meir en lítið klókir í bókunum, eða þegar hann beinir athyglinni að bardögum eins og við Helms Deep í stað þess að horfa á heildina. EN: Sammála mági þínum, sem Standalone verk eru myndirnar hreint augnakonfekt. Eru þær bestu myndir...