sko, það er oftast ekki byrjað strax á táskóm, held það sé vegna þess að ökklarnir eru látnir styrkjast fyrst. Svo er best (og skilda sumstaðar) að vera í balletsokkabuxum, ballettbol og ballettskóm. Þú getur keypt þetta á mörgum stöðum, t.d. í Ástund. Ef þú verður líka á táskóm er gott að kaupa sokkabuxur með gati undir ilinni, þá er þægilegra að setja á og laga plástrana sem verja fæturna fyrir núningi af táskónum (svo maður fái síður blöðrur)