Tja, ég mæli allavega með náttúrufræðibraut í MR. En í 5. og 6. bekk á eðlisfræðideild eru 7 til 9 tímar í stærðfræði á viku, og 12 til 15 tímar í eðlis-/efnafræði á viku, þannig að það er náttúrulega slatti.
úú, ég líka.. reyndar skiptust þær svona lesin stæ: 10 ólesin stæ: 8,5 lesin stæ: 10 ólesin stæ: 9 lesin stæ: 9 ólesin stæ: 10 vegna þess að við tökum 2 próf í einu, eitt lesið og hitt ólesið. En samt, 3 tíur í röð… :D
Ég er nokkuð viss um að hann er dáinn og að Snape sé góður. En ég get alveg lofað þér því að hann verður ekki draugur og hann var ekki Horcrux. Ef annað hvort reynist rétt skal ég gefa þér 3000 kall. Geymdu link á þennan póst og sendu mér síðan ef ég þarf að éta þetta ofan í mig.
Það er heldur ekki þannig í Harry Potter heiminum. Maður verður að vera galdramaður, maður verður að vera með töfrasprota og maður verður að læra hvernig á að segja þuluna. Og svo verður þú líka að virkilega meina það að drepa einhvern ef þú ætlar þér að nota Avada Kedavra.
mánó, þriðjó, miðó, fimmtó, föstó, laugó, sunnó. og janó, febró, marsó, apró, mæó, júnó, júló, ágó, septó, októ, nóvó og desó. Það er hægt að gera þetta endalaust ef þetta eiga að vera orð eins og róló og halló….
Það kemur í ljós að allir höfðu, a.m.k. að einhveru leyti, rétt fyrir sér. :) Eftir að hafa skoðað þetta aðeins þá sé ég að það voru aðallega Philips, Sony og Toshiba sem hönnuðu DVD-ið. Nú er Toshiba meðal annarra fyrirtækja í HD-DVD hópnum og Sony í Blu-ray hópnum, en Philips virðist ekki vera að gera neitt sérstakt þessa dagana, allavega ekki í sambandi við þetta…
Jamm, þá gætu t.d. þeir sem hafa keypt sér alla þessa nýju Porsche sportbíla sem ég er að sjá á götunni notað þá eitthvað… Ríkið myndi samt aldrei gera eitthvað svoleiðis, það myndi hins vegar kannski gefa leyfi fyrir einhverjum ákveðnum hraða, nú eða ótamörkuðum, innan svona brautar sem einhver einkaðili myndi leggja sæi hann sér hag í því.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..