Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Phantom Hourglass - Nýjasti Zelda leikurinn (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 1 mánuði
Þetta er skjáskot úr The Legend of Zelda: Phantom Hourglass, sem er nýjasti Zelda leikurinn og mun koma á Ninteno DS. Virðist vera eins konar sambland af A Link to the Past og The Wind Waker.

Forrit eins og PowerPoint ? (10 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Veit einhver um eitthvað forrit sem er eins og Power Point? Ég er orðinn svo ógeðslega piraður á þessu drasli, en samt verð ég alltaf að nota það… Er Apple ekki með eitthvað svona dót?

Hvert fór... (5 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 18 árum, 2 mánuðum
…dagskrárborðinn sem var hérna?

Háskólinn á Akureyri (0 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Eru einhverjir hérna í Háskólanum á Akureyri? Ef svo er, er það rétt að þeir séu alltaf/oft með einhverja gestafyrirlesara sem tala ekkert endilega ensku eða eða einhver mál sem maður skilur, þessvegna bara hollensku eða tælensku?

Æi vá... (3 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Tekið af mbl.is Mjólkurverð til danskra bænda lækkar vegna teikningamálsins Yfirstjórn dansk-sænska mjólkurvöruframleiðandans Arla Foods ákvað í dag að lækka það verð sem fyrirtækið greiðir fyrir mjólk frá dönskum bændum. Fyrirtækið hefur orðið fyrir töluverðu tekjutapi vegna minnkandi sölu á afurðum fyrirtækisins í Miðausturlöndum þar sem reiði múslíma vegna Múhameðsteikninganna hefur m.a. komið fram í hverfandi sölu á vörum þess. Þá er sagt hugsanlegt að fyrirtækið lækki það verð sem það...

Sentbox (25 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég væri til í að fá svona sentbox í skilaboðadótið til að geta skoðað skilaboð sem ég hef sent, ekki bara þau sem ég fæ. Hverjir eru með mér?

Rúv + (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Er til Rúv plús?

Virðing og Réttlæti.... (31 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Núna ætlar VR að breyta nafninu í Virðing og Réttlæti. Ég sem hélt að botninum hefði verið náð með 365 ljósvaka- og prentmiðlum… Af hverju má þetta ekki bara heita Verzlunarmannafélag Reykjavíkur áfram….. vitleysingar…

Af hverju var myndinni minni hafnað? (1 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég sendi inn mynd af MR en henni var hafnað ástæðulaust, af hverju er það bannað?

Lost (13 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hvað er búið að sýna marga þætti úr seríu 2 í Sjónvarpinu?

Zelda seinkað aftur? (13 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Er það rétt skilið hjá mér að samkvæmt þessari frétt frá RevolutionReport komi Twilight Princess ekki fyrr en í haust?

Hvað eru til margir Gunnarar? (16 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hver er aftur slóðin á síðuna þar sem maður getur skrifað inn nafn og fengið út hve margir heita því nafni? Ég er að skrifa ritgerð og get ómögulega munað þetta. Þannig að ég spyr, hver man það?

Fartölva óskast (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Ef einhver á sæmilega góða fartölvu sem hann þarf ekki að nota þá er ég tilbúinn til að kaupa hana á skynsamlegu verði. Ég veit svo sem ekki alveg hvernig vél ég er að leita að, en hún þarf allavega helst að geta spilað nýlega leiki. Ég tími bara ekki að kaupa nýja þannig að endilega sendið mér hugaskilaboð ef þið eigið tölvu sem þið viljið selja.

Þyngd Revolution (36 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hefur eitthvað verið gefið út hvað Revo á að vera þung? Þó ég vilji hafa hana litla þá vil ég líka að hún sígi svolítið í, bæði vegna þess að það gerir stöðugri og svo er það líka bara flottara. Þannig að, veit einhver hvað hún á að vera þung?

Fyrir þá sem hata stigahórur (32 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Margir hérna eru (eðlilega) orðnir pirraðir á spömmurum og svokölluðum stigahórum og óska þeim alls hins versta. Ef það eina sem stigahórum gengur til er að ná sér í stig, af hverju þá ekki að gefa mínusstig fyrir svoleiðis korka. Þ.e.a.s. að ef korki er eytt þá dragist ekki bara frá 2 stig heldur kannski 4 eða fleiri. Þetta er allavega hugmynd…

Serbar.... (2 álit)

í Handbolti fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þeir eru alveg að klúðra þessu fyrir okkur… :/

Hvaða sæti? (10 álit)

í Stórmót fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hvað fara mörg lið úr milliriðlinum upp?

Fótur er kk orð... (30 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Jæja gott fólk, nú leiðist mér og því ætla ég að deila með ykkur þessum málfræðiupplýsingum. Orðið fótur er karlkyns og því segir maður og skrifar fæturnir mínir en ekki fæturnar mínar. Takk fyrir.

Ísland - Danmörk (28 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Danir voru að jafna núna 14 - 14 og fyrri hálfleikur næstum búinn. Hvernig haldið þið að fari?

Ég ætla að fá mér (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 3 mánuðum

Feministar? (14 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Það eru oft margir að kvarta yfir feministum og þá koma aðrir og segja að það séu öfga-feministar, sem sé ekki það sama og venjulegir og svona, en ég var að pæla, af hverju kalla þá “venjulegu” feminstarnir sig ekki jafnréttissinna eða eitthvað svoleiðis. Nú eyðilögðu Hitler og nasistarnir Þórshamarinn fyrir Eimskipafélaginu, eru ekki “öfga-feministarnir” bara búnir að eyðileggja nafnið feminismi fyrir “jafnréttissinnum”?

Hvað er fólk að gera hérna? (10 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Af hverju í ósköpunum eruð þið ekki farin að sofa? Og jafnvel verra, er einhver hérna sem er bara vaknaður á þessum tíma… :O Allavega með mig þá sofnaði ég kl. 20 og vaknaði kl. 3….

10 litlir brandarar (11 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þetta kom hingað inn fyrir svolitlu síðan, sumt er ekkert fyndið en það leynast fínustu brandarar þarna inn á milli ;) 1. Two antennas meet on a roof, fall in love and get married. The ceremony wasn't much, but the reception was excellent. 2. Two hydrogen atoms walk into a bar. One says, “I've lost my electron.” The other says, “Are you sure?” The first replies, “Yes, I'm positive…” 3. A jumper cable walks into a bar. The bartender says, “I'll serve you, but don't start anything.” 4. A...

Hvað er í gangi? (27 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Af hverju eru öll álitin tímasett á sömu sekúndunni?

Allir litir hafsins eru kaldir (5 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hvernig fannst ykkur fyrsti þátturinn? Mér fannst hann bara fínn…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok