Í 80. skiptið verða Óskarsverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Kodak leikhúsinu í Los Angeles þann 24. febrúar næstkomandi. Það sem helst einkennir athöfnina í ár er að engin ein mynd sker sig úr í kapphlaupinu um að vinna til helstu verðlaunanna. No Country for Old Men og There Will Be blood fengu flestar tilnefningar eða átta talsins hvor. Í raun er engin ein mynd sem er með keppanda í öllum fimm stóru flokkunum, sem eru besta- mynd, leikstjóri, leikari í aðalhlutverki, leikkona í...