Stafræna prentsmiðjan…. Ég efast ekki um að þeir geri vel, og séu sanngjarnir á íslenskan mælikvarða. Mitt vandamál er hins vegar það að þurfa að prenta all nokkurn fjölda, og hinn íslenski raunveruleikinn, þ.e. lág laun miðað við framfærslukostnað, íbúðalán og þess háttar, þvingar mig til að skoða aðra úrkosti en íslenska, því miður. En þið sem prófað hafið stafræna framköllun erlendis, endilega leyfið mér að heyra hverjir hafi reynst ykkur vel, og ekki væri verra ef verðin flygju með.