“Twelve o´clock high” er feiknagóð mynd. Hún fjallar um raunir foringja B-17 flugsveitar í Bretalandi í seinna stríði. Gregory Peck leikur foringjann og ef ég man rétt fékk kallinn Óskarinn fyrir. Myndin er gerð kringum 1950 löngu fyrir daga tölvueffekta og þá var enn svo mikið til af “surplus” búnaði frá stríðsárunum að þeir höfðu efni á að fórna heilli B-17 í magalendingaratriði. Myndin var til á Videohöllinni í Lágmúla fyrir s.s. tíu árum síðan.