ég veit :)… þurfti reyndar að taka þau úr því ég var að sækja um vinnu … svo þegar ég ætlaði að setja aftur í …. þá bara *púff* var helmingurinn búinn að gróa saman ( á eitthvað um 2-3 tímum ) ætla að láta gata þetta aftur einhverntímann fljótlega :)
ímyndaðu þér bara að þetta sé sprauta eða eitthvað… þetta er ekkert vont ef þú bara slakar á og ert róleg , ég hélt þetta yrði ÓÓÓÓtrúlega vont , en svo fann ég svo mikið sem ekkert til þegar hún gerði þetta mín “reynsla” allavegana
ég fékk mér 2 í einu já , þetta var ekkert mikið bólgið nema bara smá fyrsta daginn , svo varð ég smá dofinn þegar ég skipti um pinna (en það var bara því ég hitti ekki allveg 100%)
Þetta er mjööög svo góð hljómsveit spila mjög þétt og eru samhæfir í allri sinni tónlist Ákvað að benda á áður en ég sendi inn mitt svar að mitt uppáhalds lag allra tíma , með þessari ákveðnu hljómsveit hefur án efa verið “Regulator”(ekki það að það skipti einhverju máli gagnvart ykkur hinum hugurum) :)
Ég veit ekki afhverju (kannski að þetta sé soldið steríótýpuleg hugsun) , en ég hef það sterklega á tilfinningunni að það séu miklar líkur á að þessi kona sé samkynhneigð
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..