Hestamennskan mín er nú heldur stutt en ég hef samt sem áður alltaf umgengist hesta því pabbi minn er og var tamningarmaður. Ég fór á mitt fyrsta námskeið þegar ég var 4 ára og ég valdi mér flottan gráan hest, sem hét Máni og var 18 vetra þá en svo skemmtilega vildi til að pabbi minn tamdi hann :) þar gekk allt vel og eftir það þá hafði ég alltaf meiri og meiri áhuga á hestum Amma mín átti hest sem hét Glæsir og var mjög þægur barna hestur sem ég fékk að fara á bak á þegar ég vildi en eftir...