Til 666: Það eru til margar konur sem eru góðar í stærðfræði og skák, örugglega alveg jafn margar og karlar. Ástæðan fyrir því að konur hafa ekki komið mikið upp á sjónarsviðið á síðustu öld og varla fyrr en núna er að við erum fyrst núna að fá sömu félagslegu tækifæri og karlmenn. Annars ef þú ert að fullyrða að karlar séu gáfaðari en konur þá finnst mér þú satt að segja ekki samsvara því vel.