Við vorum saman í grunnskóla en töluðum ekki við hvort annað. Svo áttum við þannig séð sameiginlegan vinahóp og þannig þróaðist það að við byrjuðum að tala saman, símhringingar á næturnar sem enduðu í marga klukkutíma. Svo urðu hittingarnir fleiri og hann kom í hryllingsmyndachill hjá mér því ég hafði ekkert að gera og bauð honum yfir. Þetta var á fyrsta ári í menntó. sofnuðum svo óvart í rúminu mínu og svo fór hann heim, eftir þetta byrjuðum við saman og erum að nálgast 3 ár í janúar :)