Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Systurnar (0 álit)

í Kettir fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Kettlingarnir mínir, þær Birta og Grýla, að kúra saman.

Hvað kostar að bólusetja kettling? (1 álit)

í Kettir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég var að spá í hvort einhver gæti sagt mér svona ca. hvað kostar að láta bólusetja kettling? Ég er með tvö lítil krúttleg óargadýr sem þurfa víst að fara að komast í sína fyrstu bólusetningu á næsta mánuðinum eða svo (rúmlega 8 vikna) og mér skilst að það eigi að fara með þá fyrst um 12 vikna aldurinn. Er verð eitthvað mismunandi eftir dýraspítölum eða er þetta staðlað? Miao!

Daedalus óskast fyrir PC (0 álit)

í Borðaspil fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mig langar mikið að komast yfir leik sem heitir Daedalus. Þetta er alveg eldgamall leikur, ég geri mér fulla grein fyrir því, en ef einhver þarna úti lumar á honum og langar að losna við hann fyrir sanngjarnt verð, þá hef ég áhuga. Ég man ekki hver gaf hann út, en ég man að hann var í spilun 1995 eða 1996 og fylgdi þá með einhverjum Mac tölvum. Hann var líka til fyrir PC tölvur. Endilega senda mér skilaboð ef einhver á hann!!

Nick Cave tónleikar? (15 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hefur nokkuð einhver heyrt um það að Nick Cave sé að koma til landsins að fara að halda tónleika? Ég hef heyrt einhvern kvitt um það, en ekki getað fundið neinar frekari upplýsingar, né fundið neinn sem er alveg viss í sinni sök. Svo, ef einhver þarna úti veit fyrir víst eitthvað um það hvort Nick Cave sé að koma til landsins eða ekki, endilega láta mig vita :) Kv. Kiza
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok