Mig langar mikið að komast yfir leik sem heitir Daedalus. Þetta er alveg eldgamall leikur, ég geri mér fulla grein fyrir því, en ef einhver þarna úti lumar á honum og langar að losna við hann fyrir sanngjarnt verð, þá hef ég áhuga.
Ég man ekki hver gaf hann út, en ég man að hann var í spilun 1995 eða 1996 og fylgdi þá með einhverjum Mac tölvum. Hann var líka til fyrir PC tölvur.

Endilega senda mér skilaboð ef einhver á hann!!