Rúnar skoraði sigurmarkið Rúnar Kristinsson skoraði sigurmark Lokeren í gærkvöldi þegar liðið lagði Standard Liege í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu, 2:1, á heimavelli Standard. Þar með komst Lokeren upp í annað sæti deildarinnar, a.m.k. í bili. Lokeren hefur nú 49 stig þegar 24 leikir eru að baki en Club Brugge er sem fyrr langefst með 64 stig eftir 23 leiki. Lierse er í þriðja sæti með 48 stig eftir 23 leiki og Anderlecht hefur 47 stig, einnig eftir 23 leiki. Lokeren byrjaði af krafti...