Ég gerði þetta sjálfur en ég er samt rafvirki þannig að ég hef smá reynslu af svona. Gætir örugglega talað við einhvern rafeindavirkja og beðið hann um að gera þetta.
Það á að vera tremsetter í mínum en hann er bara í töskunni og ég er með gorm í staðin. Nutið er líka öðruvísi á 1987 þá þurfti bara að þræða 3 grennstu strengina í gegn en hinir voru lagðir ofan á. Ég fer að mynd af mínum bráðum.
Já. Ég gæti trúað því að það mætti ná þessum rispum á bakhliðini í burtu með Swirl Remover sem StewMacDonald selur. Það fylgir þessum Schaller tunerum að þeir tapa oft skrúfunum, ég skil ekki afhverju Fender hætti með Sperzel sem var 1987 árgerðunum af Plus ég á einn þannig og það er ekki hægt að skemma þá. En þetta eru snilldar gítarar.
Vantar ekki skrúfur aftan á 3 tjúnera og er hann ekki allur í rispum eftir lokið aftaná með ógeðslegan límmiða sem stendur á að það þurfi að spóla til baka.
Antique Electronic Supply er rosalega fín verlsun í USA sem selur allt í gítarmagnara og þar með lampa á góðu verði og ég hef pantað frá þeim og þeir senda fljótt og örugglega slóðin á síðuna þeirra er http://www.tubesandmore.com/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..