Ég bý í Austurbænum í Kópavogi og það eru nokkrar körfur hérna. Bestu sem ég hef fundið eru við Kópavogsskóla, tvær körfur, malbikaður völlur í hefðbundinni stærð og með örlitlum halla en verst að það vantar alveg kassa á spjaldið. Það eru líka körfur niðri í Smára og á Kársnesi en þær eru allar hannaðar eins og þær séu fyrir smábörn, áreiðanlega í 1,50 hæð eða eitthvað. Á Kársnesi eru líklega ömurlegustu körfur sem ég hef fundið, önnur þeirra er brotin og hin er hreinlega laus frá jörðinni,...