Það versta við endajaxlatöku að mínu mati er bara það að finna stunguna frá deyfingarnálinni. Ég var um í svonaa klukkutíma um daginn og var orðin fín um kvöldið .. skil ekki af hverju svona margir væla yfir einhverri aumkunnarverðri endajaxlatöku ..
það liggur ekki svona mikið á að kaupa þessar bækur, annars koma innkaupalistarnir yfirleitt á netið stuttu áður en skólinn byrjar en ekki vera að stressa þig yfir þessu, ég var einu sinni í áfanga(þýska 403) en keypti ekki námsbækurnar fyrr en c.a. 1-2 mánuðum eftir að skólinn hafði byrjar(var löt..)
eftir viku fer ég út til noregs að vinna, fæ líklega um 350 þús borgað á mánuði en hins vegar mun ég örugglega verða drepin af múslimum úti því ég leigi íbúð í central oslo og þessir múslimar eru víst einhvað svaka vandamál þar. Eeen ég mun líklega týnast og deyja á leiðinni frá flugvellinum og til íbúðarinnar þar sem ég rata ekki rassgat og þarf að gera allt alein og alveg sjálf. Svo svelt ég kannski fyrsta mánuðinn, er búin að safna inn c.a. 85 þús íslenskar fyrir ferðina og peningurinn...
karlmannslegir, djúp rödd, soldið massaðir, metalfatnaður, alveg eins tónlistarsmekkur og ég, eins stjórnmálaskoðanir, eins áhugamál og allt það ss. að miklu leyti bara klón af mér, enda hef ég bara einu sinni “fallið” fyrir gaur :P
Öhm, býst við að þú vitir ekki hvaðan orðið “tölva” kemur? Tölva er nýyrði yfir enska orðið “computer”. O rðið er einfaldlega dregið af orðunum “tölur” og “vövla” þar sem þegar tölvan kom fyrst fram þá var hún aðallega notuð við hluti sem tengjast tölur, reikning og slíkt. Vona að þú vitir hvað völva er, en í stuttu máli þá vissu þær ýmislegt og þar sem “computer” veit ýmislegt um tölur þá er hún Tölva.
*fyrirlít *vatínkanið annars er ég eiginlega sammála mér, en til þess að forðast “memem þú sökkar blablabla veistu ekki neitt” væli frá fávitu kristnu fólki þá segi ég yfirleitt að ég “fyrirlít það hvernig kaþólska kirkjan hefur misnotað vald sitt”. úff… langar svo að rústa vatínkaninu, það er búið að hertaka svo mörg rit sem þau telja standast gegn kristni(rit galíleos, kopernikusar og lengi mætti telja) og svo auðvitað þessi “útbreiðsla kristni til þess að frelsa heiminn blaa” … ég myndi...
man ekki hvernig það er þegar fólk er að byrja í framhaldsskólum, en það er aldrei að vita nema þeir koma seint. Skólinn minn hefur meira að segja gleymt því að senda mér greiðsluseðil :S er sjálf ekki enn búin að fá minn fyrir næstu önn
Ég skil mjög vel hvernig þér líður, hélt sjálf á tímabili að ég hlyti að vera þroskaheft þar sem ég hef óeðlilega mikinn áhuga á víkingum, þróun germanskrar málsögu, trúarbragðavitleysu og mörgu í þeim dúr. Komst svo að því að það er bara mikið fleira af fólki eins og ég erlendis. Held að málið sé einfaldlega það að Ísland er ósköp lítið land með fáu fólki, og þar af leiðandi er erfiðara að finna aðra einstaklinga sem falla líka úr “norminu”
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..