Ég hef nú endað í tveimur ÆÐISLEGUM samböndum sem byrjuðu bara á msn.. Í fyrra skiptið talaði ég við gaurinn geðveikt mikið, vorum ALLTAF að spjalla.. Við byrjuðum næstum saman áður en við hittumst, svo hittumst við í fyrsta skipti og það var ekkert vandræðalegt, byrjuðum saman þá, fyrsti hittingurinn. Við vorum óaðskiljanleg í 11 mánuði. Seinni og núvernadi kærastinn var meira tricky afþví við erum eldri og með meira langtímadæmi í huga.. Við hittumst ca 5 sinnum áður en við byrjuðum saman....