Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: The Singles

í The Sims fyrir 21 árum, 10 mánuðum
PC leikur held ég. Ég fann demo fyrir hann á Gamespot.com. Þar var það einhver 485 MB og maður fær að spila leikinn í klukkutíma.

Re: Sims2-draumasimsleikur:D

í The Sims fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Upprunalegi Sims er í þrívídd en 3D engine-in í Sims 2 er endurbætt og á allan hátt miklu betri :). Ef þú hefur séð screenshot eða clip úr The Sims og svo líka úr the Sims2 þá sérðu sko virkilegan mun ;)!

Re: Bilað X-box

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það gæti verið það. Og ég veit vel að vélin er ekki ábyrgð hérna en ég er til í að borga til að fá hana í lag. Þess vegna vantaði mig verkstæðisnafn ;) . En fólkið hjá Tölvudreifingu er búið að hjálpa mér svo að þetta er allt í goody. Takk fyrir hjálpina allir!

Re: Bilað X-box

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ekki ef ég keypti það í Bandaríkjunum…

Re: sims2 body shop

í The Sims fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Vantar þig ekki bara DirectX 9.0? Ef svo er geturðu fengið það á http://www.microsoft.com/windows/directx

Re: The Sims 2 Body Shop

í The Sims fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Já, ég styð að þetta komi hérna inn. Þar sem þetta er frekar stórt file þá þætti mér betra að downloada henni af íslenskri síðu. En það er spurning hvort að þeir hérna sem að eiga þetta vilji ekki bara setja það inn á DC++? Þar sem þetta er freeware þá er það ekki ólöglegt :)!

Re: THE SIMS 2 KEMUR ÚT....

í The Sims fyrir 22 árum
Maður á að downloada honum.

Re: THE SIMS 2 KEMUR ÚT....

í The Sims fyrir 22 árum
Maður nær í hann á netinu :)!

Re: THE SIMS 2 KEMUR ÚT....

í The Sims fyrir 22 árum
The Sims Body Shop er svona Create-a-Sim í tíunda veldi :). Þá er hægt að búa til karakterana sína, velja alveg húðlit, aukahluti föt, augnalit, háralit, hárgreiðslu og svoleiðis. Það mun vel stytta biðina eftir leiknum sjálfum að eyða tímanum í þessu :)!

Re: THE SIMS 2 KEMUR ÚT....

í The Sims fyrir 22 árum
Hann kemur ekki út fyrr en í ágúst í Bandaríkjunum, en það er rétt að hann komi í október í Evrópu. Þessar upplýsingar fékk ég af amazon.com og amazon.co.uk og treysti þeim vel. En í maí á The Sims 2 body shop eða CaSIE að koma út. Og það verður sko geðveikt :)!

Re: Hjálp með börn í SiMs

í The Sims fyrir 22 árum
Þau geta lært einhvern galdur sem að lætur þau verða fullorðin. Ég man ekki hvað hann heitir í svipinn :/!

Re: Sims Special

í The Sims fyrir 22 árum
Já, þú verður glaður þegar að Sims 2 kemur, því það er margt af því sem þú nefnir til staðar í honum. Ég myndi vilja að gæludýrin myndu eldast líka og deyja að lokum úr elli. Ég myndi vilja að ef maður skipti um málningu á veggjunum eða gólfefni, þá gæti maður valið um að það gerist strax eða að maður gæti fylgst með Simsunum gera það sjálfir. Og ég myndi vilja geta farið í göngutúra með hundinn minn eða barnið í barnavagninum. o.s.frv. o.s.frv. Ætli þetta verði ekki allt komið í Sims 4 :Þ ?...

Re: Hjálp með börn í SiMs

í The Sims fyrir 22 árum
Þau geta orðið fullorðin í Makin' magic :)!

Re: Hvenær kemur hann.....

í The Sims fyrir 22 árum
Farðu bara á www.thesims2.com og lestu chat transcripts. Þar eru ýmsar upplýsingar. Reyndar eru þau alltaf að ýja að því að það verði veður í leiknum en það voru víst einhverjir miklir erfiðleikar með það. Það rigndi sko líka inni í húsunum :Þ. En ég sit með krosslagða fingur!

Re: Hvenær kemur hann.....

í The Sims fyrir 22 árum
Júmms, en Maxis hefur ekki gefið upp neinn ákveðinn útgáfudag. Þeir vilja ekki að við bindum vonir okkar við eitthvað sem svo ekki rætist. Ég er persónulega fullkomlega sátt við að bíða. Þeir eru bara að gera leikinn enn betri. Og ef ég þarf að bíða í nokkra mánuði í viðbót til þess að þeir geti lagað veðrið og sett það inn í leikinn þá er ég bara hæstánægð :)!

Re: sims 2

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég kem ekkert á þessa síðu á hverjum degi. Og ég svaraði spurningunni var það ekki?

Re: sims 2

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ekki að ég vilji vera leiðinleg, en væri ekki ráð að skoða hinar umræðurnar áður en þú býrð til nýja? Ég hef alla veganna rekist á tvær umræður um hvenær Sims 2 komi og svaraði þeim báðum eins. Ég ætla hins vegar að leyfa þér að leita að þeim umræðum upp á eigin spýtur :)!

Re: er hægt að downláta:)???

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Af hverju kaupirðu þér ekki bara nýjustu viðbótina, Makin' magic og færð svo fyrsta leikinn (og allar hinar viðbæturnar) lánaðann hjá einhverjum öðrum?

Re: Hvenær kemur hann.....

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ókei, það eru nú þegar til nokkrar umræður um þetta sama svo ég set bara sama svarið hér ;) Á amazon.com segir að hann komi út 31. ágúst og á amazon.co.uk segir að hann komi út þann 8. október. Það er eins gott að þekkja fólk í Bandaríkjunum því eftir þessu kemur hann ekki hingað fyrr en rétt fyrir jól ;)

Re: En á ný, getiði hjálpað

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Efra svindlið er til þess að búa til skjal þar sem tölfræði fyrir fjölskylduna þína saveast. Þetta er algjör óþarfi í raun því að ef maður vill vita eitthvað getur maður bara skoðað budgetið sem maður fær upp með því að ýta á peningaupphæðina sína í leiknum. Og seinna svindlið er til þess að bæta við það sem skráist í efra svindlinu. Ég hef aldrei notað þetta og ekk ihaft neina löngun til þess heldur. Mesti óþarfi segi ég nú bara :)!

Re: Sims 2

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Á amazon.com segir að hann komi út 31. ágúst og á amazon.co.uk segir að hann komi út þann 8. október. Það er eins gott að þekkja fólk í Bandaríkjunum því eftir þessu kemur hann ekki hingað fyrr en rétt fyrir jól ;)

Re: smá hjálp reyndar MIKLA HJÁLP

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þú færð dreka hjá vampýrukonunni þegar þú átt nægan pening fyrir dragon nest. Þeir éta allan fjandann, blóm, toadstools sem vaxa á lóðinni og svo rusl. En ef þeir verða svangir þá fer allt í bál of brand ;)

Re: Monkey Island 1

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Er ekki save hnappur í interfacinu? Þar sem þú velur skipanirnar eins og talk, pull, use o.s.frv.? Mig minnir það en það er líka langt síðan ég spilaði leikinn :)

Re: En á ný, getiði hjálpað

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
svindlið: history - Writes a history of the currently family to {SimsDirectory}\\FamilyHistory.txt Open this file in Excel to read it easily. There is one line of stats for every day the family has been in existence. hist_add - Same as above, except that it appends the information to the file rather then overwriting it. Og nei, það er ekki til neitt svindl sem leyfir þér að byggja fleiri en tvær hæðir. Bíddu bara eftir Sims2 :)

Re: Hvar'??

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þú getur downloadað bílskúrshurðum á www.killersims.com. Og bílum líka ef þú vilt :).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok