Ég á Beaglehvolp frá Dalsmynni. Ekkert við hann að athuga, en Beagle er ekki fyrir hvern sem er. Hann er mjög þrjóskur og að kenna honum er ekkert verk fyrir byrjendur. Á móti kemur að hann er alveg laus við árásargirni ganvart öðrum dýrum og hundum. ( Að undanskildu því þegar hann kemst á kanínuslóð, þá verður hann alveg óður og heyrir ekki neitt. ) Eins og áður hefur verið sagt er ekkert að athuga við tvílita Beagle. Þetta með ættbókina er þannig að fólk verður að vera búið að ákveða nafn...